|

Alfons Hannesson: Messiah púnktarnir.
|

Svandís Hannesdóttir: Vitnisburður. |
Gleðilegt sumar. |
Alfons Hannesson. Betanía: Stór hluti af þjónustu Jesú gerðist í og kringum Betaníu.
|

Elías Árnason:
Tónlist og vitnisburður.
|
|
 
Dionysius Exiguus. Samkvæmt ártali Gyðinga fæddist Jesú árið 3757, samkvæmt ártali Rómverja fæddist Jesú árið 753. Ártöl voru miðuð við einhvern ákveðinn atburð eða við einhvern konung. Gyðingar miðuðu ártalið við sköpun jarðar en Rómverjar við byggingu Róm. Grikkir voru með ártal sem miðaði við einn af konungum þeirra.
Dionysius Exiguus var beðinn um að hanna nýtt ártal sem miðaðist við krossfestingu Jesú Krists.
|
Á þeim tíma var lítið um að kristnir héldu upp á fæðingu Jesú Krists en þeir héldu upp á upprisuna. Ekki voru allir sáttir um hvenær páskarnir væru og var tilgangurinn með þessu ártali að sameina hina kristnu um tímasetningu páskanna. Dionysius hélt því fram að Jesú hefði fæðst 25. desember en að árið byrjaði 1. janúar. Fyrsta árið, samkvæmt þessu ártali, var því 1.janúar 754 A.D. Með því að setja fram bæði fæðingu Jesú Krists og krossfestingu ýtti hann undir og sameinaði hina kristnu um að halda upp á hvoru tveggja.
A.D. eða Anno Domini þýðir "ár Drottins" en ekki eftir dauðann (after death) eins og sumir hafa haldið fram. Mörgum árum seinna sáu menn að Dionysius hefði gert mistök því að í Matteusar guðspjalli er Heródes konungur á lífi þegar Jesú fæðist (Heródes reyndi að drepa Jesú strax eftir fæðinguna) en samkvæmt útreikningi Dionysius dó Heródes árið 4 f.K. Lengst af var þetta talið vera svo en nú telja menn að Heródes hafi dáið árið 1 f.k.
Það var of seint að breyta ártalinu svo nú er talað um að Jesú hafi fæðst árið 4 fyrir Krist. Árið 1582 lagaði páfi að nafni Gregory ártalið , svo að það passaði samkvæmt gangi sólar. Til þess tók hann 11 daga út þannig að 4.október varð 15.október og til að laga hlutina svolítið betur var hlaupár sett inn.
Samkvæmt þessu er núna 2012. ár Drottins. Gleðilegt ár. Alfons Hannesson. |
|
AlfonsHannesson.
Þið tókuð sennilega eftir því að rétt fyrir áramótin birti Morgunblaðið upplýsingar um rannsókn Tækniskólans í Þrándheimi sem sýndi að blóðþrýstingur þeirra sem sækja reglulega kirkju væri alla jafna lægri en hjá þeim sem gerðu það ekki. Þessi rannsókn var í samræmi við hliðstæðar rannsóknir í Bandaríkjunum.
Það er athyglisvert að þeir rannsökuðu ekki aðeins áhrif kirkjusóknar á blóðþrýsting viðkomandi heldur einnig fjölmarga aðra mögulega áhrifavalda sem hafa neikvæð áhrif. |
Heilsudeild háskólans í Pittisburgh gerði rannsókn á því hvort kirkjurækið fólk lifði lengur en þeir sem ræktu ekki kirkju og komst að því að þeir sem sóttu kirkju reglulega lifðu að jafnaði 2-3 árum lengur en aðrir (BBC. News 4.april 2006)
Orðskviðirnir 3:5-8 "Treystu Drottni af öllu hjarta en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit. Mundu til Hans á öllum vegum þínum, þá mun Hann gera stigu þína slétta. Þú skalt ekki þykjast vitur, óttast Drottin og forðast illt, það mun verða heilnæmt fyrir líkama þinn og hressandi fyrir bein þín."
Vers 1 og 2 segja "Son minn, gleym eigi kenning minni og hjarta þitt varðveiti boðorð mín, því að langa lífdaga og farsæl ár og velgengni munu þau veita þér í ríkum mæli."
Það er athyglisvert að nú eru rannsóknir hálærðra manna farnar að sýna fram á það sem Biblían hefur sagt í nokkur þúsund ár. Stundum kirkjusóknir, lesum Biblíuna, lifum lengur.
Guð blessi ykkur. Alfons. | |

Bærinn Almolonga var mjög fátækur bær fyrir rúmum 20 árum með meiri vandamál heldur en menn gátu leyst úr. Bænin breytti öllu og í dag....... Þú lest ekki um það í Morgunblaðinu.
|

Viðtal við Rabbí að nafni Schneiders um Jesú og hvernig hann tók afstöðu með Jesú.
|
|
|

Reinhard Banke og samstarfsmenn hans hafa leitt 52 milljón manna til frelsis í Afríku á síðast liðnum 20 árum. Allt er það skjalfest. Þú lest ekki um það í Morgunblaðinu.
|

Heidi Baker og eiginmaður hennar, Roland Baker eru með heimili fyrir rúmlega 2000 munaðarlaus börn í Mósambík. Guð kallaði þau út í þetta starf og Hann sér fyrir þeim. Þú lest ekki um það í Morgunblaðinu.
|
|
|
Árið 1973 gaf Drottinn, David Wilkison sýn sem hann þorði ekki að segja öðrum frá, en gerði þó. Flest af því sem hann sá og var talið fáránlegt á sýnum tíma, hefur þegar komið fram og er hluti af okkar lífi í dag. Hvað um það sem ekki hefur komið fram? Ættum við að taka mark á því?
|

Skid guys. Þessir tveir menn eru mjög eftirsóttir í Ameríku, en þeir leika boðskap Biblíunnar.
|
Þú veist ekki að Guð er allt sem þú þarft, fyrr en Jesús er allt sem þú hefur |

Sáttmálar Guðs: Biblíukennsla í 8 þáttum.
6. þáttur: Sáttmálinn við Móse. Guð varð að leiðrétta þeirra hugsanahátt til að geta blessað þá |

Clancy. Kvikmynd um unga stúlku sem strýkur að heiman. |

Páll postuli. Sál ofsótti fylgjendur Jesú Krists. Á leið til Damaskus mætti hann Jesú og gaf líf sitt Honum. Hann breytti nafni sínu í Pál og varð einn aðal mönnum í boðun fagnaðar erindisins. Til að búa til þessa kvikmynd urðu þeir að skálda svolítið en það sem við sjáum í Postula sögunni kemur vel fram í þessari mynd.
|

Upprisan og lokaþáttur myndarinnar Miracle maker, Allar persónurnar eru búnar til úr leir. |

Juanita Bynum: Hún varð gjaldþrota. Hún fór yfir um á taugum. Hún lofaði Drottinn þrátt fyrir það og Hann læknaði hana og leysti hana úr öllum hennar vandamálum. Nú syngur hún fyrir Drottinn. Hér syngur hún lagið " I dont mind waiting."
Ef þú vilt horfa á fleiri tónlistarmyndbönd ýttu á lifandi tónar. |
Hvað finnst þér? Sendu okkur línu í gegnum Facebook. Liflinan er á Facebook. |
|